Viðskiptaskilmálar
Leigulín
Allt leigulín er eign Blæs og er ætlað til tímabundinnar notkunar hjá viðskiptavini.
Þvottur og skil
Leigulín frá Blæ skal eingöngu þvegið hjá Blæ og skilað til þvottar innan 7 daga frá afhendingu, nema annað sé samið.
Týnt eða skemmt lín
Viðskiptavinur ber ábyrgð á líninu á meðan það er í hans vörslu.
Týnt lín eða lín sem skemmist umfram eðlilegt slit er rukkað samkvæmt endurnýjunarverði. Eðlilegt slit er á ábyrgð Blæs.
Talning
Blær heldur utan um magn líns sem fer til og frá viðskiptavini. Athugasemdir vegna talningar skulu berast eins fljótt og auðið er.
Pantanir og afhending
Pantanir í gegnum vefinn eru háðar staðfestingu Blæs. Afhending fer eftir framboði og magni hverju sinni.
Verð og akstur
Þjónusta og akstur eru rukkuð samkvæmt gildandi verðskrá Blæs, nema annað sé samið.
Greiðslur
Greiðslufrestur kemur fram á reikningi. Dráttarvextir geta fallið á vangreiddar kröfur.
Samþykki
Með pöntun staðfestir viðskiptavinur að hann hafi kynnt sér og samþykkt þessa skilmála.

